Fallega fólkið
18.06.2007 14:56:54 / darri

!!!HALLGEIRSEY!!!

Jæja sæta fólk, nú er komið að því... Stærsta útihátíð sumarsins (á eftir Eyjum) er að nálgast... hún verður helgina 6. - 8.júlí næst komandi og verður haldin á Hallgeirsey, en það er rétt fyrir utan Hvolsvöll..

Þetta verður mesta djamm sumarsins ef þú ferð ekki til eyja... Þannig það er næstum því skyldumæting!!

Svo eru líka 3 strákar úr X-inu að fara að vera í hljómsveitinni We're not Alone sem spilar fyrir þvílíkt villtum dansi á laugardags nóttina (Nelli - söngur/gítar, Kjarri - Gítar, Darri - Trommur).. (heimasíða Whatever : whatever.blogg.is)

Þetta getur ekki klikkað..!!! Förum í hópferð, myndum tjaldbúðir og tryllum staðinn!

 Nánari upplýsingar á www.hallgeirsey2007.tk !!!


» 37 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 21:13:48 / Erna

Þrettándinn

Erna, Dída og Vala, Ninna og Sesselja ætla að mæta til Dídu í Lækjarásinn á laugardaginn 6.janúar, sem einnig gengur undri nafninu þrettándinn....við vonumst til að þið heppnu sjöttu exarar sem sjáið þessa færslu í tíð og tíma kíkið á okkur ;)

Við ætlum að fá okkur aðeins í aðra tána og trítla svo um bæinn og taka nokkur spor á tjúttstöðunum.

Gamanið hefst klukkan hálf níu og stendur fram á rauða nótt!
Gleði gleði gleði gleði líf mitt er....

Kveðja Erna

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 16:33:41 / Vala

Hittingur...hittingur...hittingur...

...fimmtudaginn 24.ágúst...Barnum...kl. 20:30!:haha: Skyldumæting fyrir alla sexexara!

ciao

Vala og Björg


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 19:03:00 / Helgi

Counting

357 dagar í næsta 6-X gathering. Verið reddý. Farið í ljós síðan, þið voruð öll svo hvít á myndunum frá kvöldinu. Nema Jói, en hann er alþjóðabekkshommi.

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 17:18:29 / Erna

Neyðarúrræði


Fólk virðist almennt ekki sátt með náttúruöflin þessa dagana og flestir búnir að beila...Sessó og Vala við þurfum því ekki að plana neitt meira!
Annars langar mig, og ábyggilega flestum að hittast! Ég sem hlakkaði svo til, meeen.

Ef einhver, einhver þarna úti er til í að bjóða í sókn þá er það vel þegið af mér, Völu, Sesselju, Helga, Kjarra, Sunnu, Vigni, Þóri og Kalla því við getum ekki haldið partý snuff snuff!

Fréttir væntanlegar....vonandi!

Annars legg ég til að við hittumst á Barnum í kvöld og skemmtum okkur saman! því það er svo gaman.
Erna

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 17:12:19 / Erna

Statustjékk

Bekkjarfélagar athugið!

Hver og einn skal kommenta undir eigin nafni og svara eftirfarandi spurningum:

-kem / kemst ekki og er fýlupúki
-hvenær

...því við erum að fara í sukkerýýý og rigningartjútt sumarsins ;)
Jibbýkóla

Erna



» 7 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 23:50:42 / Helgi

Jógúrt

Sælinú.

Ég hef svo mikla ánægju af því að blogga hérna. Kannski er það af því að ég er ánægður í hjarta mínu. Kannski ekki. Það gæti líka hugsanlega verið útaf því sem gerðist í gær, það var magnað.

Mér sýnist að Laugarvatnið sé plássið. Allavega samkvæmt skoðanakönnuninni(skekkjumörk -+ 30 ) er það staðurinn. Ég hlakka til að sjá ykkur öll, og þeir sem mæta ekki geta bara verið heima hjá sér og borðað fullt af nammi á Laugardeginum og fengið illt í magann!

kv,
helgi.

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 05:58:27 / Helgi

Jæja

Ég ætla að nota bloggréttindin og kommenta aðeins um útileguna.

Fyrsta lagi, pælingar með að fara á laugardegi, er ekki bara málið að þeir sem komast á föstudegi fara þá og þeir sem komast á laugardegi fari þá og svo verðum við alla helgina?

Annað, eigum við ekki að velja okkur stað eftir veðri frekar en staðsetningu?  Eigum  við ekki bara að láta skoðanakönnuna ráða en ákveða svo endanlega staðsetningu eftir veðri? Þið verðið að athuga það að Hörður mætir með Levi's tjaldið sitt, og Hörður tjaldar ekki í rigningu.

Munið síðan eftirfarandi heilræði:

"Mér er alveg sama hvert við förum í rauninni, vil bara hafa gott veður og ykkur" - Halldór Ragnar Halldórsson lögfræðinemi og heimsfari.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 14:41:07 / Erna

Skoðanakönnun

Ég von að fólk verði heiðarlegt í skoðanakönnuninni hérna til hægri og velji sitt bara einu sinni!

Ef betri tillögur skjóta upp kollinum þá endilega kommentið!

Er málið að fara á laugardaginn eða ?

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 16:36:48 / Helgi

Ísinn brotinn með hamingju

Hin árlega 6-X útilega mun verða haldin 3. helgina í júlí (þ.e. 15-16. júlí). Þar sem þetta er 6-X útilega þýðir það í stuttu máli að allir í 6-X munu fara saman í útilegu. Allir að mæta, og endilega að taka vini og vandamenn með. Ég vil sjá sem flesta enda veit ég hvað við söknum hvers annars( Erna saknar samt held ég bara Rúnars )

Staðsetning útilegunnar er ekki ákveðin eins og er og því eru allar tillögur um staðsetningu vel þegnar í kommentakerfinu.

Bless bless,
Helgi

» 28 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 11:40:54 / Erna

Seil og hæl

Heyr heyr kæru vinir...

BIÐIN er á enda... nú er komið að stundinni sem allir biðu eftir að bíða eftir en vissu samt ekki að þeir stæðu í biðröð eftir...

Megatöff últra snazzy súper funký heimasíða sjöttubekkinga EX hefur nú litið dagsins ljós! Uppfrá þessum tíma erum við eitt, bekkurinn og sexex!
Látum nú hendur standa fram úr ermum og fætur fram úr brókum og upphefjum stórveldið á ný...

Sexex

fyndari en Richard Pryor, tjúttaðri en Paris Hilton, liðugri en Rúnar Alexandersson, klárari en Einstein, tanaðri en Gilzenegger og hressari en Maggi Schev.

ástarkveðja
Erna og Vala




» 12 hafa sagt sína skoðun